Hvað er svo eiginlega hægt að gera á Akureyri?
Okkur finnst slagorð Akureyrar alls ekki svo galið! Öll lífsins gæði, eða er það kannski bara litli bærinn með stóra
hjartað?
Hér höfum við fjöldann allan af frábærum veitingastöðum, 2 bíó, metnaðarfyllsta leikhús landsins að okkar mati, mögnuð listasöfn, mikinn skólabæ, frábæra sundlaug og magnað skíðasvæði. Margar dásamlegar verslanir í miðbænum og svo mætti lengi telja.


