
Hestaleigan Skjaldarvík býður uppá styttri reiðtúra fyrir hópa og einstaklinga um nágrenni
Skjaldarvíkur.
Í boði eru eins og hálfs tíma ferðir sem henta öllum aldurshópum. Við reynum að verða við öllum séróskum varðandi þjónustu okkar þannig að endilega hafið samband ef það er eitthvað sérstakt sem þið hafið í huga.
Hestaleigan býður uppá ágætt úrval reiðhesta sem bæði henta óvönum og vönum knöpum, öryggisvesti og hjálmar eru staðalbúnaður í ferðum okkar.


