Facebook

Skjaldarvík

Skjaldarvík býður upp á gistingu í 27 fallega búnum herbergjum með sameiginlegri bað- og snyrtiaðstöðu.  Herbergin eru eins til fjögurra manna og hægt

Skjaldarvík - gistiheimili



Skjaldarvík býður upp á gistingu í 27 fallega búnum herbergjum með sameiginlegri bað- og snyrtiaðstöðu.  Herbergin eru eins til fjögurra manna og hægt að koma fyrir aukarúmum í mörgum tilvikum. Góð rúm eru í öllum herbergjum, þægilegir svefnsófar í þriggja til fjögurra manna herbergjum, aukarúm eru vönduð og þægileg.

Herbergin er útfærð á ólíkan hátt, hvert og eitt með sín sérkenni en gæði gistingar í öllum herbergjum þau sömu.

Verðlista er að finna í valmyndinni hér til hliðar. Morgunmatur er innifalinn í verði gistingar en greiða þarf fyrir hann sérstakalega þegar fleiri en þrír eru í herbergi, sjá nánar í verðlista.

Í austurálmu er notaleg setustofa og bar með sjónvarpi, bókasafni og spilum.

Í bakgarði eru svo heitu pottarnir en hvergi er betra að láta líða úr sér eftir góðan dag, frítt er í pottana fyrir gesti gistiheimilisins.

Á lóðinni er notalegur trjálundur þar sem gestir og gangandi geta tyllt sér niður með kaffibolla, morgunverðinn eða bara lagst í hengirúmið og látið sig dreyma.

Panta gistingu

Mynd augnabliksins

Póstlistar

Framsetning efnis

Ferða skipuleggjandi
moya - Útgáfa 1.13 2009 - Stefna ehf
Inspired by Iceland