Skjaldarvík býður upp á gistingu í 28 fallega búnum herbergjum með sameiginlegri bað- og snyrtiaðstöðu. Herbergin eru eins til fjögurra manna. Góð rúm eru í öllum herbergjum, þægilegir svefnsófar í fjölskyldu herbergjum.
Herbergin er útfærð á ólíkan hátt, hvert og eitt með sín sérkenni en gæði gistingar í öllum herbergjum þau sömu.
Verðlista er að finna í valmyndinni hér til hliðar. Morgunmatur er innifalinn í verði gistingar.
Í austurálmu er notaleg setustofa og bar með sjónvarpi, bókasafni og spilum.
Í bakgarð eru svo heitur pottur en hvergi er betra að láta líða úr sér eftir góðan dag, frítt er í pottinn fyrir gesti gistiheimilisins.
Á lóðinni er notalegur trjálundur þar sem gestir og gangandi geta tyllt sér niður með kaffibolla, morgunverðinn eða bara lagst í hengirúmið og látið sig dreyma.
Panta gistingu
Hestaleigan Skjaldarvík býður uppá styttri reiðtúra fyrir hópa og einstaklinga um nágrenni Skjaldarvíkur.