Hér áðurfyrr var rekið elliheimili í Skjaldarvík til fjölda ára af mikium myndarskap - stofnað af Stefáni Jónssyni klæðskera og bónda. Vorið 2010 tókum við fjölskyldan þetta svo upp á okkar arma og stofnuðum hér ferðaþjónustu. Nú rekum við hér gistiheimili og hestaleigu.
Við leggjum okkur framm við að vera eins umhverfisvæn og við mögulega getum. Notum eins mikið af gömlum munum, pússum þá upp og málum, breytum bætum eða lögum og gefum þeim nýtt líf.
Þegar kemur að matreiðslunni þá búum við nánast allt til frá grunni, bökum brauðin okkar á staðnum gerum allar sulturnar og kökurnar sjálf.
Partur af umhverfisstefnunni okkar er að við þvoum þvottinn okkar á staðnum og straujum helst ekki.
Dvelji gestir í fleiri en eina nótt förum við ekki inn á herbergi þeirra til að þrífa nema þess sé óskað sérstaklega.
Við viljum meina að í geymslunni sé hægt að finna ýmsa gersemi sem hægt sé að nýta á marga vegu, við vonum að þú sem gestur heillist með okkur af þessari kenningu og fáir hér hugmyndir sem þú getur nýtt þér heimavið og í framtíðinni.
Velkomin í Skjaldarvík